SK perluduft - Designer Metallic Lustre - Rose Gold
Perlulitirnir gefa fallegan gljáa og þeir virka best þegar þeir eru bornir yfir sykurmassa, súkkulaði, isomalt ofl. með pensli. Ef það á að bera duftið á einstök stykki eða stóra fleti virkar snilldarvel að nota duftbursta. Ef það á að setja duft á litla fleti, eins og innan í blóm eða á einstaka hluta stærri stykkja, er gott að nota fínan pensil.
Frábærir duftlitir sem eru 100% matarlitir. Þeir innihalda engin aukaefni og það má borða duftið. Litirnir henta vel til þess að bera á sykurmassa, gum paste, hvítt súkkulaði, isomalt, kakósmjör, deig, smjörkrem, frosting og margt fleira.
Litirnir eru líka æðislegir til þess að mála á sykurmassa og súkkulaði. Til þess að mála á sykurmassa þarf að blanda litina alkóhóli eða sítrónusafa, þeir eru ekki vatnsleysanlegir. Það má líka bera duftið óblandað á sykurmassa, súkkulaði, isomalt ofl. með pensli, en þeir gefa fínlegan glimmergljáa. Notið mjög lítið duft til þess að byrja með og bætið við eftir þörfum.
Magn 5,5 g.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum