Spatúla - 30 cm
Stór og löng spatúla. Það er rosalega gott að nota stórt og langt blað til þess að slétta smjörkrem ofan á kökum.
Setjið vel af smjörkremi á kökuna. Leggið spatúluna í 45 gráðum á brún kökunnar og dragið inn að miðju til þess að fá fallegar brúnir. Ekki draga spatúluna alla leiðina yfir kökuna, stoppið í miðjunni og farið þannig allan hringinn. Ef farið er alla leið yfir kökuna og yfir brúnina hinum megin er hætta á að það myndist horn út fyrir brún kökunnar.
Lengd blaðs: 30 cm
Ateco
Couldn't load pickup availability