Skafa úr ryðfríu stáli - 15 cm
Skafan er frábær þegar smjörkrem er sett á hliðar kökunnar. Setjið smjörkrem ofan á kökuna og sléttið með sköfunni eða spaða. Setjið því næst vel af smjörkremi á hliðar kökunnar og notið sköfuna til þess að dreifa úr kreminu og slétta það í leiðinni.
Skafan er úr ryðfríu stáli og handfangið er í beinni línu við blaðið svo enginn halli myndast á sköfuna þegar hún er lögð lóðrétt á kökuplattann eða borðið. Skafan er einnig frábær til þess að tempra súkkulaði.
Stærð: 15 cm x 11,7 cm
Ateco
Couldn't load pickup availability