Skafa fyrir smjörkrem - 9,3 x 20 cm
Smjörkremskambur
Skafan er frábær þegar smjörkrem er sett á hliðar kökunnar. Setjið smjörkrem ofan á kökuna og sléttið með sköfunni eða spaða. Setjið því næst vel af smjörkremi á hliðar kökunnar og notið sköfuna til þess að dreifa úr kreminu og slétta það í leiðinni. Skafan er einnig frábær til þess að tempra súkkulaði.
Skafan er úr plasti.
Stærð: 9,3 cm x 20 cm
PME
Couldn't load pickup availability